„Ég get ekki boðið börnunum mínum upp á þetta lengur,“ segir Anna Björk Ólafsdóttir, íbúi undir Eyjafjöllum, sem farin er að heiman með börnin sín. Hún er ein þeirra mæðra sem yfirgefið hafa heimili sín undanfarna daga vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Síðustu daga hafa fjölskyldur flúið heimili sín undir Eyjafjöllum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Í flestum tilfellum eru það mæður með börn sín sem hafa flutt til ættingja eða vina á meðan heimilisfaðirinn heldur búskapnum í horfi.
Anna Björk segir það hreinan hrylling að búa á svæðinu í kjölfar eldgossins. „Myrkrið sem helltist yfir okkur er hræðilegt. Það er allt hreinlega svart. Ég hef ekkert getað sofið heima vegna eldinga þar sem húsið hefur gjörsamlega nötrað. Upplifunin er skelfileg. Það er algjörlega af ótta sem við tókum þessa ákvörðun, að fara að heiman,“ segir Anna Björk.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
