ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Aukning á vatnsrennsli í Markarfljóti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:15 › 22. apríl 2010
Aukning varð á vatnsrennsli í Markarfljóti rétt fyrir eitt í nótt en þegar leið að morgni hafði vatnsmagn ekki aukist frekar.

Aukning varð á vatnsrennsli í Markarfljóti rétt fyrir eitt í nótt en þegar leið að morgni hafði vatnsmagn ekki aukist frekar. Mynd Ingólfur Júlíusson

Rétt fyrir klukkan eitt í nótt varð örlítil aukning á vatnsrennsli í Markarfljóti og barst nokkur krapi með. Þegar leið að morgni hafði vatnsmagn ekki aukist frekar í ánni. Nóttin hefur að öðru leyti verið mjög róleg á gossvæðinu. Frá eldstöðvunum má þó enn finna markvissan takt umbrotanna, að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum.

Vetur og sumar frusu saman undir Eyjafjöllum og er nú mikill snjór og hálka á veginum austan við Markarfljót. Má í dag búast við öskufalli í grennd við eldstöðina og vestur af henni.

Í tilefni sumardagsins fyrsta verður í dag opið hús og veisla í Heimalandi frá klukkan 11-17.
Verða veitingar í boði SS, Emmess ís og Ölgerðarinnar. Rangárvallasýsludeild Rauða Krossins sér um að halda utan um samkomuna líkt og undanfarna daga í Heimalandi.

Í dag verða klukkan 08:00 áframhaldandi upplýsingafundir sérfræðinga í upplýsingamiðstöðvunum í Skógarhlíð og í Hvoli á Hvolsvelli.  Þóranna Pálsdóttir veðurfræðingur og Steinunn S. Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur verða á fundinum í Skógarhlíð en fulltrúi Jarðvísindastofnunar HÍ, verður á fundinum á Hvoli.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?