Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
18:25 › 21. apríl 2010
Í sýnum sem tekin voru af öskunni úr Eyjafjallajökli á mánudaginn og rannsökuð voru hjá Jarðvísindastofnun reyndist flúormagn vera um 850 mg/kg samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar. Þolmörk í fóðri nautgripa eru oft sett við 25-30 mg/kg og sauðfjár við 70-100 mg/kg.
Ljóst er því að flúormagnið í öskunni úr Eyjafjallajökli er þrjátíuföld þolmörk sé miðað við fóður nautgripa.
Fóður sem inniheldur stöðugt 250 mg/kg getur valdið bráðri eitrun eftir skammvinna neyslu. Almannavarnir brýna fyrir bændum að mikilvægt sé að forða skepnum undan öskufalli og tryggja þeim aðgang að fóðri og hreinu rennandi vatni.
Ef útlit er fyrir öskufall skal hýsa skepnur eða flytja annað ef nokkur kostur er og hafa samband við dýralækni ef skepnur verða veikar.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013