Verða að slátra dýrunum undir Eyjafjöllum

Öskufallið undir Eyjafjallajökli er farið að hafa fara veruleg áhrif á bændur á svæðinu og þeir sem hafa orðið verst úti leita leiða til þess að létta á sér, jafnvel með því að slátra dýrunum. Einn bóndi hefur nú þegar brugðið til þess örþrifaráðs að bregða búi. Meðfylgjandi mynd er ekki fyrir viðkvæma.

„Það er ekki til neins að hafa skepnur þar sem ekkert gras er,“ sagði einn bóndinn í samtali við DV í dag.

Merkjanleg aukning er í slátrun á dýrum undir Eyjafjöllum, en aðallega séu það gripir sem stóð alltaf til að slátra síðar á árinu. Slátrun sé flýtt til þess að létta á álaginu á bændum og rýma til. Það komi svo í ljós á næstu dögum hvað bændur ákveða að gera, en enn séu fjölmargir að velta möguleikunum fyrir sér og reyna að halda lífi í búinu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.