ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Helmingur þjóðarinnar treystir enn Morgunblaði Davíðs

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:46 › 20. apríl 2010
Það fjölgar töluvert í hópi þeirra sem segjast bera lítið traust til Morgunblaðsins en tæpur fjórðungur kveðst nú bera lítið traust til þess. Það er nærri því tvöföldun frá könnun MMR í september 2009 þegar 13,2 prósent sögðust bera lítið traust til blaðsins.

Það fjölgar töluvert í hópi þeirra sem segjast bera lítið traust til Morgunblaðsins en tæpur fjórðungur kveðst nú bera lítið traust til þess. Það er nærri því tvöföldun frá könnun MMR í september 2009 þegar 13,2 prósent sögðust bera lítið traust til blaðsins.

Tæplega helmingur þeirra, eða 46,4 prósent, sem svöruðu könnun MMR um traust til fjölmiðla sögðust bera mikið traust til Morgunblaðsins. Í september síðastliðnum, eða skömmu áður en Davíð Oddsson tók við ritstjórn blaðsins, sögðust 56,9 prósent bera mikið traust til blaðsins.

Að sama skapi fjölgar töluvert í hópi þeirra sem segjast bera lítið traust til Morgunblaðsins en tæpur fjórðungur kveðst nú bera lítið traust til þess. Það er nærri því tvöföldun frá könnun MMR í september 2009 þegar 13,2 prósent sögðust bera lítið traust til blaðsins. Meðal netfréttamiðla nýtur Mbl.is mests trausts en 51,7 prósent segjast bera mikið traust til Mbl.is.

Fréttastofa RÚV nýtur sérstöðu meðal almennings hvað traust almennings áhærir. Alls sögðust 78,5 prósent aðspurðra bera mikið traust til fréttastofunnar og tæp fimm prósent sögðust bera lítið traust til hennar. Fréttablaðið nýtur mikils traust meðal 34,8 prósent svarenda.

Verulega hefur dregið úr fjölda þeirra sem segjast bera lítið traust til DV. 56,1 prósent segjast nú bera lítið traust til blaðsins, samanborið við 70-81 prósent eins og verið hefur í síðustu mælingum MMR. 9,4 prósent aðspurðra sögðust bera mikið traust til blaðsins. Þá sögðust 46,9 prósent bera lítið eða frekar lítið traust til DV.is en 10,2 prósent mikið traust.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?