ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Karlar vilja nektardans, konur ekki

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:41 › 19. apríl 2010

Í nýrri könnun MMR hvort fólk væri fylgjandi eða andvígt lögum um bann við nektardansi sem taka gildi þann 1. júlí næstkomandi kom fram afgerandi munur á afstöðu karla og kvenna. Þannig eru einungis 33 prósent karla fylgjandi lögunum en 76 prósent kvenna.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 54,1 prósent vera fylgjandi lögunum og 45,9 prósent sögðust andvíg lögunum. Þá voru 44 prósent svarenda undir þrítugu fylgjandi lögunum borið saman við 53 prósent hjá aldurshópnum 30-49 ára og 64 prósent meðal 50 ára og eldri.

Sé fjöldi karla undir þrítugu skoðaður sérstaklega kemur í ljós að 70 prósent svarenda í þessum hópi sögðust andvígir lögum um bann við nektardansi.

Úrtak könnunarinnar voru einstaklingar á aldrinum 18 til 67 ára og voru þeir valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Könnunin var síma- og netkönnun og var svarfjöldi 865 einstaklingar. Hún var framkvæmd dagana áttunda til tólfta apríl síðastliðinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?