ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

World Class hótar að fara í mál vegna viðhorfskönnunar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:25 › 13. apríl 2010
World Class hótar að fara með málið fyrir dómstóla til að fá ummæli í könnun MMR dæmd dauð og ómerk.

World Class hótar að fara með málið fyrir dómstóla til að fá ummæli í könnun MMR dæmd dauð og ómerk.

  • Sigurður G. Guðjónsson.

    Sigurður G. Guðjónsson.

Framkvæmdastjóri Markaðs- og miðlarannsókna ehf, MMR, segir að fyrirtækinu hafi borist hótun um lögsókn frá Sigurði G. Guðjónssyni, lögmanni líkamsræktarstöðvarinnar World Class. Tilefnið er viðhorfskönnun MMR um afstöðu almennings til áframhaldandi aðkomu fyrri eigenda að fyrirtækjum sem hafa átt í rekstrarerfiðleikum.

Ólafur Þór Gylfason, framkvæmdastjóri MMR, segir fyrirtækið harma að lögmaðurinn skuli beita hótunum um lögsókn til að hindra „eðlilegar viðhorfskannanir meðal almennings“, eins og segir í tilkynningu.

Dagana 7. til 12. apríl 2010 framkvæmdi MMR skoðanakönnun meðal almennings þar sem
meðal annars var spurt um viðhorf til málefna líkamsræktarstöðvarinnar World Class eins og
rætt hefur verið um þau í fjölmiðlum. MMR tekur fram að könnunin var unnin fyrir viðskiptavin fyrirtækisins og því verði niðurstöður hennar ekki birtar.

Föstudaginn 9. apríl 2010 barst MMR eftirfarandi tölvubréf frá Sigurði G. Guðjónssyni, lögmanni Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur, sem eiga og reka World Class-líkamsræktarstöðvarnar hér á landi:

„Skjólstæðingar mínir, Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, sem eiga og reka WorldClass líkamsræktarstöðvar hér á landi hafa fengið upplýsingar um að fyrirtæki þitt sé að gera könnun, þar sem nöfn þeirra og fyrirtækis þeirra er nefnt. Þau hafa ekki óskað eftir því að fyrirtæki þitt gerði könnun fyrir þau persónulega eða fyrirtæki þeirra. Þá virðist fyrirtæki þitt ganga út frá því að umbjóðendur mínir hafi fengið skuldir afskrifaðar. Svo er ekki. Þau urðu hins vegar fyrir miklu tjóni vegna fjárfestinga í Danmörku, sem Straumur‐Burðarás fjárfestingarbanki stýrði. Til að kóróna skömmina á þeim bæ brá bankinn á það ráð eftir að hafa vanefnt hlutafjárloforð gagnvart umbjóðendum mínum að kaupa þann 1. október 2009 kröfu af Arion banka á hendur fyrirtæki umbjóðenda minna með ábyrgð Björns. Sú krafa var notuð til að knýja fyrirtæki þeirra sem hafði staðið í fjárfestingum með Straumi í Danmörku í þrot.

Með vísan til framangreinds er þess hér með krafist fyrir hönd umbjóðenda minna að nöfn þeirra verði tekinn út úr könnun fyrirtækis þíns. Verði það ekki gert og þeim aðdróttunum sem koma fram í könnunni haldið frekar á lofti af fyrirtæki þínu mun leitað atbeina dómsstóla til að fá þann þátt könnunarinnar sem snýr að umbjóðendum mínum dæmdan dauðan og ómerkan.
Virðingarfyllst,
Sigurður G. Guðjónsson hrl.“

Vegna þessa bréfs Sigurður vill MMR taka eftirfarandi fram:
• Í könnuninni er í engu hallað á umbjóðendur lögmannsins Sigurðar G. Guðjónssonar og er spurningalag sett fram með þeim hætti að engin afstaða er tekin til þess hvort umbjóðendur hans hafi fengið afskrifaðar skuldir eða hvort þeir hafi orðið fórnarlömb óheppilegra starfshátta í bankakerfinu (eins og lögmaðurinn bendir á).

• Efnistök könnunarinnar eru fengin úr fréttum fjölmiðla og er hún gerð í því augnamiði að kanna skilning almennings á umræðunni. Geri lögmaðurinn athugasemdir við fréttirnar þá vinsamlegast snúi hann sér til viðkomandi fjölmiðla.

• MMR harmar að lögmaðurinn skuli beita hótunum um lögsókn til að hindra eðlilegar viðhorfskannanir meðal almennings.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?