ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Þorgerður og Kristján Ara skulduðu 1700 milljónir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:55 › 12. apríl 2010
Þorgerður er ofarlega á lista yfir umfjöllun um lánafyrirgreiðslu til stjórnmálamanna ásamt maka sínum Kristjáni Arasyni.

Þorgerður er ofarlega á lista yfir umfjöllun um lánafyrirgreiðslu til stjórnmálamanna ásamt maka sínum Kristjáni Arasyni.

Í 2. bindi skýrslu Rannsóknarnefndar alþingis er fjallað um þá stjórnmálamenn og maka þeirra sem höfðu heildarlánstöðu sem var hærri en 100 milljónir króna. Þar er nafn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur ofarlega á blaði en heildarlán hennar og eiginmanns hennar Kristjáns Arasonar numu nærri 1700 milljónum króna. Bjarni Benediktsson er einnig á listanum.

Einungis Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, og eiginmaður hennar Kristinn Björnsson, sem var einn stærsti hluthafinn í fjárfestingafélaginu Gnúpi, eru ofar en Þorgerður á listanum yfir lánafyrirgreiðslu til stjórnmálamanna og maka þeirra.

Listann yfir þessa lánafyrirgreiðslu til stjórnmálamanna og maka þeirra má sjá hér. Athygli vekur einnig að nöfn Lúðvíks Bergvinssonar, Ármanns Kr. Ólafssonar og Bjarna Benediktssonar er einnig að finna á listanum. Öfugt við þær Sólveigu og Þorgerði má ætla að lánin séu til þeirra persónulega en ekki til maka þeirra.

Listinn:

1. Sólveig Pétursdóttir 3.635 milljónir
2. Þorgerður K. Gunnarsdóttir 1.683 milljónir
3. Herdís Þórðardóttir 1.020 milljónir
4. Lúðvík Bergvinsson 755 milljónir
5. Jónína Bjartmarz 283 milljónir
6. Árni Magnússon 265 milljónir
7. Ármann Kr. Ólafsson 248 milljónir
8. Bjarni Benediktsson 174 milljónir
9. Ásta Möller 141 milljónir
10. Ólöf Nordal 113 milljónir



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?