Vöxtur á útlánum Glitnis til Baugs og félögum tengdnum Baugs úr miðju ári 2007 vekja athygli rannsóknarnefndar.
Stærstu eigendur allra stóru bankanna fengu óeðlilega greiðan aðgang að lánsfé hjá þeim banka sem þeir áttu, að því er virðist í krafti eignarhalds síns segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið.
„Athugun rannsóknarnefndar Alþingis á stærstu áhættuskuldbindingum Glitnis, Kaupþings, Landsbankans og Straums-Burðaráss leiddi í ljós að í öllum bönkum voru helstu eigendur bankans meðal stærstu lántakenda hans.“
Útlán til helstu eiganda Glitnis jukust þegar Lárus Welding tók við
„Hjá Glitni banka hf. voru stærstu lántakendurnir Baugur Group hf. og félög tengd Baugi. Sérstaka athygli vekur sá vöxtur sem hljóp í útlán Glitnis til þessa hóps upp úr miðju ári 2007. Stjórnarskipti höfðu þá orðið í bankanum í kjölfar þess að aðilar tengdir Baugi og FL Group juku verulega við eignarhlut sinn í honum. Við fall bankans námu lán til Baugs og tengdra félaga rúmlega 250 milljörðum króna (tæpum tveimur milljörðum evra). Sú fjárhæð jafngilti um 70% af eiginfjárgrunni bankans.“
Það tímabil sem rannsóknarnefndin vitnar til hér, upp úr miðju ári 2007, er það tímabil sem Lárus Welding tók við forstjórastöðu bankans af Bjarna Ármannssyni. En forstjóraskiptin urðu í apríl 2007.
„Stærsti hluthafi Kaupþings, Exista hf., var jafnframt annar stærsti skuldari bankans. Sá stærsti var Robert Tchenguiz, hluthafi og stjórnarmaður í Exista. Við fall bankans skuldaði Exista Kaupþingi vel yfir 200 milljarða króna.“
Björgólfur Thor skuldaði meira en nam eigin fé Landsbankasamstæðunnar
„Við fall Landsbankans voru Björgólfur Thor Björgólfsson og félög tengd honum stærstu skuldarar bankans. Björgólfur Guðmundsson var þriðji stærsti skuldari bankans. Samtals námu skuldbindingar þeirra við bankann vel yfir 200 milljörðum króna. Það var meira en sem nam eigin fé Landsbankasamstæðunnar. Björgólfur Thor var einnig stærsti hluthafi Straums-Burðaráss og hann var stjórnarformaður þess banka. Björgólfur Thor og Björgólfur Guðmundsson voru hvor um sig, ásamt tengdum aðilum, meðal stærstu skuldara bankans og saman mynduðu þeir stærsta lántakendahóp hans“
Starfsmenn banka ófærir um að meta hæfi eiganda sinna til lántöku
Þá segir að eigendur bankana hafi fengið verulegar fyrirgreiðslur í gegnum dótturfélög bankanna sem ráku peningamarkaðssjóði. Rannsókn á fjárfestingum peningamarkaðssjóða á vegum rekstrarfélaga stóru bankanna leiddi í ljós að sjóðirnir fjárfestu mikið í verðbréfum tengdnum eigendum bankanna segir í skýrslunni.
„Vandséð er að tilviljun ein hafi ráðið þeim fjárfestingarákvörðunum. Eigandi eins bankans, sem jafnframt sat í bankaráði hans, lýsti því við skýrslutöku að hann teldi að bankinn hefði verið „mjög ánægður með að hafa [sig] sem lántakana.“ Almennt séð eru starfsemnn banka ekki í góðri stöðu til að meta á hlutlausan hátt hvort eigandi hans sé góður lántakandi eða ekki,“ segir orðrétt í skýrslunni.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 


Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
