Tvítugur Bandaríkjamaður hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að kveikja í fjölbýlishúsi í New York sem varð þess valdandi að kona og þrjú börn hennar létust.
Maðurinn, Caleb Lacey, er sagður hafa þráð ekkert heitar en að fá viðurkenningu frá vinnufélögum sínum. Ætlaði hann sjálfur að slökkva eldinn og vera þannig hetja í augum vinnufélaga sinna.
Grunur leikur á að Caleb hafi kveikt eldinn í stigahúsi fjölbýlishússins. Íbúar komust hvergi þar sem brunastigi hafði nýlega verið fjarlægður af byggingunni. Grunur um aðild Calebs að málinu vaknaði strax, sérstaklega í ljósi þess að hann fór á slökkvistöðina og klæddi sig í slökkviliðsbúning áður en formleg tilkynning um eldinn barst á slökkvistöðina.
Caleb neitaði sök í málinu en hann var búsettur nærri staðnum þar sem eldurinn kom upp. Hann byrjaði í slökkviliðinu árið 2008 og sagði yfirmaður hans í slökkviliðinu fyrir dómi að hann hafi verið fúll yfir því að hafa farið í 90 útköll án þess að um raunverulegan eld hafi verið að ræða. Þá hafi hann aldrei svarað útköllum frá miðnætti til klukkan sjö að morgni meðan hann starfaði í slökkviliðinu, eða þar til nóttina örlagaríku að hann mætti sjálfviljugur.
Dómari í málinu taldi sannað að Caleb hafi kveikt eldinn og sakfelldi hann fyrir mannráp á fjórum manneskjum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
