Guðbjarni hafði verið á flótta í sex daga þegar hann gaf sig fram. Geir Jóni Þórissyni yfirlögregluþjóni kemur ekki á óvart hversu lengi Guðbjarna hafi tekist að fara huldu höfði. Mynd Guðmundur Vigfússon
„Hann var búinn að fara víða en ég get staðfest að hann hafi hringt af Eggertsgötu og gefið sig fram þar,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn um strokufangann Guðbjarna Traustason. Guðbjarni var á flótta undan réttvísinni í sex daga áður en hann gaf sig fram.
Samkvæmt heimildum blaðsins fannst Guðbjarni á stúdentagörðum Háskóla Íslands við Eggertsgötu þar sem hann dvaldi hjá barnsmóður sinni. Geir Jón segir Guðbjarna ekki hafa dvalið lengi á Eggertsgötunni og að slóð hans hafi legið víða.
Guðbjarni, sem dæmdur var í rúmlega sjö ára fangelsi fyrir aðild sína að Pólstjörnumálinu árið 2007, skilaði sér ekki úr dagsleyfi sem hann fékk frá fangelsinu á Litla-Hrauni þar síðasta laugardag. Um tíma var óttast að hann hefði farið úr landi en lögregla bar þær fregnir til baka í tilkynningu.
Geir Jón segir það ekki koma sér á óvart hversu lengi fanginn hafi getað farið huldu höfði. „Hér er mjög auðvelt að fela sig og sérstaklega ef menn fá aðstoð er lítið mál að halda kyrru fyrir í einhverjum sumarbústað,“ segir Geir Jón og bætir aðspurður við að ekki sé enn vitað hvort einhver hafi hjálpað Guðbjarna við flóttann.
Lögreglan hafði fengið fjölda vísbendinga um mögulegan dvalarstað Guðbjarna og á tveimur stöðum þar sem hans var leitað fundust fíkniefni og voru tveir menn handteknir.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna