Sjötug kona frá Hubei-héraði í Kína var barin og grafin lifandi af verktökum sem hafa ákaft reynt að bola henni út af heimili sínu undanfarna mánuði. Ástæðan var sú að húsnæði hennar var á verðmætu landi og ætluðu verktakarnir að reisa þar fjölbýlishús og verslunarhúsnæði.
Dómstóll hafði úrskurðað að bera ætti konuna, sem hét Wang Cuyan, út af heimili sínu. Í Kína er málum þannig háttað að einstaklingar geta ekki eignast ákveðin landsvæði. Þau eru í eigu yfirvalda og kveða kínversk lög á um það, að ekki þurfi að greiða fólki skaðabætur sem er bolað frá heimilum sínum og híbýli þeirra rifin.
Að sögn kínverskra yfirvalda er ný lagasetning í bígerð til verndar kínverskum almenningi. Í tilviki Wangs fylgdust þrír lögregluþjónar með verktökunum án þess að bregðast við. Hafði hún neitað að yfirgefa húsið og ákváðu verktakarnir því að rífa húsið þó hún væri innandyra. Þegar sonur hennar kom á vettvang reyndi hann að grafa móður sína upp. Þegar hann fann hana loksins var hún látin.
Fasteignaverð í Kína hefur verið á hraðri uppleið á undanförnum árum og hafa aðferðir verktaka og aðgerðarleysi stjórnvalda vakið reiði kínversks almennings. Ekki er nema ár liðið síðan kínversk kona kveikti í sjálfri sér á þaki í Sichuan-héraði til að mótmæla því að rífa ætti hús hennar til að koma fyrir stóru verslunarhúsnæði.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung