ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Meinuð skólaganga vegna samkynhneigðra foreldra

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 9. mars 2010
Leikskólabarni er meinað að sækja kaþólskan skóla á næsta ári vegna þess að móðir barnsins er samkynhneigð.

Leikskólabarni er meinað að sækja kaþólskan skóla á næsta ári vegna þess að móðir barnsins er samkynhneigð.

Leikskólabarni er meinað að sækja kaþólskan skóla á næsta ári vegna þess að móðir barnsins er samkynhneigð. Barnið er alið upp af móður þess og sambýliskonu hennar og var það ástæða fyrir því að kaþólski presturinn Bill Breslin ákvað að meina barninu um inngöngu á næsta skólaári.

„Þetta snýst ekki um að barninu sé refsað fyrir syndir foreldra þess. Ástæðan er að lesbíska parið segir samband sitt gott og ætti að vera samþykkt af öllum, en kirkjan getur ekki verið sammála því,“ segir í tilkynningu frá prestinum í Boulder, Colorado, í Bandaríkjunum.

Málið hefur vakið mikla reiði meðal mannréttindasamtaka í Bandaríkjunum. Er þeirri spurningu varpað fram hvort að kirkjan myndi meina barni að sækja skóla ef foreldrar barnsins hefðu drýgt hór. Er sagt að þar til bakgrunnur allra foreldra barna, sem sækja kaþólska skóla, hefur verið kannaður þá sé þetta skýrt mannréttindabrot gegn barninu sem var meinuð skólaganga vegna kynhneigðar foreldra þess.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.