Washington DC verður fyrsta borg Bandaríkjanna þar sem konum býðst að fá kvennasmokka án endurgjalds, samkvæmt frétt í Washington Post. Verjunum verður útdeilt á snyrtistofum, klukkubúðum og í menntaskólum í þeim hverfum þar sem tíðni HIV- og alnæmissmits er há.
Smokkum fyrir karlmenn hefur til langs tíma verið útdeilt án endurgjalds í borginni, en engu að síður mun tíðni HIV- eða alnæmissmits ekki hafa lækkað hjá þeldökkum borgarbúum. Í bígerð er að dreifa frítt um 500.000 kvennasmokkum, sem munu, að sögn embættismanna í borginni, veita konum meira vald til verndar gegn HIV-smiti, og kynsjúkdómum ef rekkjunautur þeirra neitar að nota verju.
Kvennasmokkar hafa verið á markaðinum síðan 1993, en konur hafa verið seinar að taka við sér hvað varðar notkun þeirra. Bandarískir viðskiptavinir töldu að fyrsta útgáfa kvennasmokkanna hefði verið í dýrari kantinum, en nú mun nýrri útgáfa smokkanna, sem hefur verið notuð í löndum eins og Suður-Afríku, Brasilíu og Indónesíu, verða dreift í Washington DC. Lyfjaverslunum verður einnig boðið að hefja sölu á þeim, og mun dreifing sennilega hefjast innan þriggja vikna.
Í viðtali við Washington Post sagði Shannon Hader, sem fer fyrir málum sem varða HIV og alnæmi í borginni, að smokkar fyrir konur yrðu fáanlegir „alls staðar þar sem smokkar fyrir karlmenn væru fáanlegir“. Shannon sagði að markmiðið væri að fjölga kostum en ekki fækka þeim.
HIV/alnæmissmit er algengasta dánarorsök þeldökkra kvenna á aldrinum 25 til 34 ára í Bandaríkjunum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu