ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Gunnari fagnað í bæjarstjórn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:40 › 9. mars 2010
Gunnar Birgisson er mættur aftur til starfa í bæjarstjórn Kópavogs.

Gunnar Birgisson er mættur aftur til starfa í bæjarstjórn Kópavogs. Sigtryggur Ari.

Gunnari I. Birgissyni, fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, var fagnað af bæjarfulltrúum er hann mætti til starfa á ný í bæjarstjórn í dag. Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, byrjaði fundinn í dag á því að bjóða Gunnar velkominn til starfa.

„Ég vil bjóða Gunnar Birgisson velkominn aftur til starfa,“ sagði Ármann Kr. við upphaf fundarins.

Gunnar lét af störfum sem bæjarstjóri í júní í fyrra eftir að umfjöllun um viðskipti Kópavogsbæjar við útgáfufyrirtækið Frjálsa miðlun komust í hámæli í umræðunni eftir að DV greindi frá þeim um miðjan apríl 2009.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.