ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Bíll Völu Grand og Baldvins brann til kaldra kola

13:10 › 9. mars 2010
Vala og Baldvin lentu í klónum á brennuvargi í nótt.

Vala og Baldvin lentu í klónum á brennuvargi í nótt.

Vala Grand og kærasti hennar Baldvin Vigfússon lentu í klónum á brennuvargi í nótt þegar kveikt var í fallegum Chrysler 300 bíl sem er í eigu Baldvins. Bíllinn stóð fyrir utan Arahóla í efra Breiðholti þegar kveikt var í honum og er hann, samkvæmt heimildum DV, gjörónýtur.

Grunur leikur á að svokölluðum molotov-kokteil, eða eldsprengju, hafi verið kastað inn um afturrúðu bílsins með fyrrgreindum afleiðingum. Baldvin staðfesti í samtali við DV að eldurinn hafi komið upp en vildi þó ekki tjá sig um málið að öðru leyti.

Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um brunann klukkan þrjú í nótt en enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.