ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Baráttumaður gegn samkynhneigð kemur út úr skápnum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:17 › 9. mars 2010
  • Roy Ashburn kom út úr skápnum í spjallþætti í gær.

    Roy Ashburn kom út úr skápnum í spjallþætti í gær.

Bandaríski öldungadeildaþingmaðurinn Roy Ashburn, sem um árabil hefur barist gegn réttindum samkynhneigðra, er kominn út úr skápnum. Það vakti athygli þegar Ashburn var stöðvaður ölvaður undir stýri á dögunum en þá var hann á leiðinni heim af hommabar með karlmann sér við hlið.

„Ég er samkynhneigður. Þetta eru orðin sem hafa verið svo erfið fyrir mig í svo langan tíma,“ sagði Ashburn í viðtalsþætti Ingu Barks í gærkvöldi. Ashburn, sem er 55 ára gamall þriggja barna faðir, situr í öldungadeild Kaliforníuríkis fyrir Repúblikanaflokkinn.

Í þættinum sagðist Ashburn hafa ætlað að halda einkalífi sínu aðskildu við starf sitt sem stjórnmálamaður. „Þegar ég fór yfir strikið, braut lög og stofnaði vegfarendum í hættu þá er skijanlegt að fólk vilji skýringar. Það er best að vera bara hreinskilinn og segja við kollega mína og fjölskyldu að ég er samkynhneigður,“ sagði Ashburn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.