Tommy Hydfors er yfirmaður samráðshóps lögreglunnar í Svíþjóð sem fer með rannsókn skipulagðrar glæpastarfemi þar í landi.
Sænska ríkisstjórnin ákvað í fyrra að koma á fót sérsveit yfirmanna í lögregluliði Svíþjóðar og yfir sveitinni er samráðshópur sem í sitja fulltrúar ákæruvaldsins, skattayfirvalda, tollayfirvalda og landamæraeftirlitsins, auk lögreglunnar. Yfirmaður hópsins hefur mikið velt fyrir sér hvað Vítisenglar vilji til Íslands og telur að það snúist að mestu um fíkniefnasölu.
Í Svíþjóð eru Vítisenglar stærstu glæpasamtökin sem koma að skipulagðri glæpastarfsemi. Meðlimir Vítisengla eru á bilinu 100 til 120 talsins. Fjölmargir áhangendaklúbbar fylgja samtökunum og þegar þeir eru taldir með eru meðlimirnir á bilinu 500 til 600 talsins. Að auki eru fjölmörg önnur glæpasamtök með alþjóðlegar tengingar, svo sem frá Balkanskaga, Eystrasaltsríkjunum og Evrópu.
Borga mánaðargjald
Tommy Hydfors, yfirmaður samráðshóps lögreglunnar í Svíþjóð sem fer með rannsókn skipulagðrar glæpastarfsemi, segir að það sé auðvelt að komast inn í raðir Vítisengla – en mjög erfitt að losna úr samtökunum. „Einstaklingur í áhangendaklúbbi Vítisengla þarf að greiða félagsgjald til Vítisengla sem er um 18 þúsund krónur á mánuði. Ef maðurinn hins vegar vill losna þarf að borga tæpar tvær milljónir til Vítisenglanna – bara til að komast út. Það segir sig sjálft að mjög fáir hafa efni á því að borga þessa upphæð. Lögreglan bendir ungu fólki sem hefur áhuga á að gerast meðlimir í þessum klúbbum að það sé mjög hættulegt og að það ætti að hugsa sig tvisvar um áður en það sækir um aðild.”
Koma sér vel fyrir
Aðalmeðlimir Vítisenglanna lifa góðu lífi. Eiga fína bíla og búa í glæsihúsum, að sögn Tommys. „Þeir eru með mikla peninga á milli handanna og nýta öll ráð til að koma peningum í umferð. Þeir hafa stofnað fyrirtæki um alls kyns starfsemi og þeir nota þau til að þvo peninga, sem þeir nota svo til fjárfestinga, til dæmis í fasteigna- og byggingariðnaðinum,” segir Tommy og bætir við að vissulega þurfi að elta peninganna. Það sé ekki nóg því þessum mönnum þurfi að koma í fangelsi.
Allt snýst um dópið
Þegar Tommy er spurður hvaða áhrif það hafi á Íslenskt samfélag að MC Iceland verði fullgildir meðlimir Hells Angels svarar hann. „Ég hef hugsað talsvert um það hvað þessi glæpasamtök séu að vilja til Íslands þar sem einungis búa um 300 þúsund manns. Um sextíu prósent af starfsemi Hells Angels í Svíþjóð snúast um fíkniefni og það ætti ekkert að verða öðruvísi á Íslandi. Það verður án efa barátta milli glæpahópanna um yfirráð á fíkniefnamarkaðnum.”
johanneskr@dv.is
Ítarleg umfjöllun um Vítisengla og skipulagða glæpastarfsemi í DV í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna