„Það er að koma ár síðan ég fór í meðferð. Ég tók til hjá mér og sneri við blaðinu og það gengur alveg ótrúlega vel í lífinu,“ segir Íris Björk Jóhannesdóttir, ungfrú Reykjavík 2010 í samtali við nýjasta tölublað Séð og Heyrt.
„Það er líka svo mikið af skemmtilegu dóti í gangi að ég er virkilega kát og alltaf brosandi,“ segir Íris sem hefur margt til að gleðjast yfir enda nýkrýnd fegursta fljóð Reykjavíkur. Það hafði aldrei hvarflað að Írisi að taka þátt í keppninni en eftir að hringt var í hana og hún beðin um að taka þátt ákvað hún að hugsa málið.
„Ég vildi fá að sofa á þessu og hugsa um hvað gæti fylgt svona keppni og ákvað að lokum að nýta mér boðið. Ég viðurkenni að ég var alveg týpan með fordóma fyrir svona keppnum en er það ekki lengur og mér líkar alveg ofboðslega vel við allar stelpurnar í keppninni og þykir vænt um þær,“ segir Íris.
Nánar í Séð og Heyrt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar