Líf hinnar fertugu Teresu Peck, frá Essex á Englandi, er í molum þessa dagana eftir að í ljós kom að eiginmaður hennar er jafnframt faðir fyrsta barnabarnsins hennar. Á eiginmaðurinn, hinn 41 árs gamli Neil Spencer, nú von á öðru barni með dóttur Teresu.
Teresa og Neil hittust í október árið 2006 og lýsir Teresa því í viðtali við breska blaðið The Sun hversu hamingjusöm þau voru þegar þau kynntust. Var hamingjan svo mikil að þau ákváðu að gifta sig árið 2008 en þegar brúðkaupsveislan fór fram var dóttir hennar, Chantelle, sem í dag er 22 ára, ólétt. Teresu örlaði ekki fyrir því hver væri faðir barnsins á þeim tíma.
En eins og dæmin hafa sýnt þá komast svik yfirleitt upp um síðir. Þegar Chantelle eignaðist heilbrigða dóttur fór Teresa að leggja saman tvo og tvo þar sem stúlkan var mjög lík börnum Neils úr fyrra sambandi. Teresa ákvað því að spyrja eiginmann sinn hreint út hvort hann væri faðir stúlkunnar. Neitaði Neil því og sakaði hann eiginkonu sína um ofsóknarbrjálæði. Það var síðan Chantelle sem kom upp um Neil þegar hún sagði frænku sinni alla söguna.
„Þegar ég sá Daisy fór ég fyrst að hafa áhyggjur. Hún var rauðhærð eins og börnin hans Neils og var nákvæmlega eins og hann. Þetta voru hræðileg svik. Ég henti Neil út samstundis og skil ekkert í dóttur minni heldur,“ segir hún og bætir við að hún geti ekki horft í augun á barnabarni sínu í dag.
Eftir að Teresa henti eiginmanninum út flutti hann inn til Chantelle. Þau eiga nú von á öðru barni en eru ekki lengur saman, að því er fram kemur í The Sun.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung