Íslendingur sem er í haldi lögreglunnar í Kaupmannahöfn grunaður um morð á öðrum Íslendingi var úrskurðaður í tuttugu og sex daga varðhald á laugardaginn. Ove Dahl hjá rannsóknarlögreglunni í Kaupmannahöfn staðfestir að hinn grunaði hafi verið yfirheyrður tvisvar.
Íslendingurinn sem var myrtur í Kaupmannahöfn á föstudaginn hét Stefán Brynjar Óskarsson, hann var 42 ára. Að sögn Ove Dahl staðfesti hinn grunaði að hann hefði myrt Stefán Brynjar vegna ósættis sem upp kom hjá þeim.
Ove Dahl sagði að hinn grunaði hefði ekki farið nánar út í smáatriði ósættisins, en hann hafi verið undir áhrifum áfengis, og að sögn Ove, hugsanlega annarra efna. Ove taldi að hinn grunaði hefði búið um nokkurt skeið í Danmörku. Ove Dahl vildi ekki gefa upp nafn hins grunaða.
Stefán Brynjar lést eftir að hafa verið stunginn einu sinni í hálsinn. Rannsókn málsins verður haldið áfram.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun