76 ára ítalskur listaverkasali, Giovanni Schubert, var drepinn í Mílanó á miðvikudaginn vegna söluhagnaðar af tveimur málverkum eftir íslenska málarann Erró. Morðinginn hafði notið leiðsagnar listaverkasalans og hafði selt fyrir hann tvö verk eftir Íslendinginn fyrir samtals um 12 milljónir króna. Deilt var um hvernig skipta ætti ágóðanum og enduðu samningaviðræðurnar með morði.
Morðinginn var vinur Schuberts, Matteo Chigorno sem er 36 ára listaverkasali, og hafði Schubert aðstoðað hann við að koma undir sig fótunum í listaheiminum. Greint var frá málinu í ítalska blaðinu Corriere della Sera á föstudaginn.
Samkvæmt frásögn Corriere della Sera sló Chigorno höfðinu á Schubert margoft í gólfið, kýldi hann og sparkaði í hann. Schubert lét lífið af völdum barsmíðanna.
Eftir að hafa myrt Schubert áttaði Chigorno sig á því að hann þyrfti að losa sig við líkið. Skar hann lík Schuberts þá í bita með hnífi og setti stykkin í sex plastpoka. Chigorno henti plastpokunum síðan í skurð sem nefndur er Naviglio Pavese, en hann tengir Mílanó við bæinn Pavia sem er rúma 30 kílómetra í burtu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir