Sarah Phillips hefur snert hug og hjörtu netverja með myndbandi um móður sína sem lést í síðasta mánuði úr krabbameini.
Myndband hinnar sextán ára gömlu Sarah Phillips af móður hennar á vefsíðunni Youtube hefur snert hug og hjörtu heimsbyggðarinnar. Móðir hennar lést nýverið úr krabbameini 48 ára að aldri en nokkrum klukkutímum áður en hún andaðist söng Sarah Phillips lagið Autumn, eftir skoska söngvarann Paulo Nutini, inn á símann sinn án undirleiks á heimili sínu í London.
Kom í ljós að Sarah söng lagið í réttri tóntegund allan tímann og setti vinur hennar upptökuna við undirleik. Hún bjó svo til myndband við lagið sem samanstendur af myndum af móður hennar og fjölskyldu sem hefur snert hug og hjörtu heimsbyggðarinnar.
Sarah sagði í samtali við breska dagblaðið Telegraph að hún hafi ákveðið að syngja lagið áður en móðir hennar andaðist því hún var ekki viss um að hún gæti sungið það í jarðarför hennar. Sarah sagðist hafa haft þetta lag í huga því í texta lagsins segir: „Þú lifir áfram í augum föður míns“.





Um hvað ræðir FBI á leynilegum fundum? – Hlustaðu hér
Kynlíf í starfslýsingunni
Almennir borgarar dæma Breivik
Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi
Geyma lík í ræstikompum