Þú getur ekki breytt fitu í vöðva, þú brennir ekki meira á morgnana og þú átt hvorki að sniðganga kolvetni í megrun né drekka átta glös af vatni á dag. DV fékk næringarfræðinginn Ólaf Gunnar Sæmundsson til að hrekja algengar fullyrðingar um hreyfingu og mataræði sem eiga ekki við nein rök að styðjast.
Því hefur verið fleygt að fólk brenni meiri fitu á morgnana en á kvöldin en sú fullyrðing er röng. Staðreyndin er sú að þegar við framkvæmum átak útheimtir það ákveðna orku. Það skiptir engu máli hvað klukkan er þegar þú framkvæmir átakið, hvort sem það er að sippa 100 sinnum eða klappa saman lófunum. Brennslan er nákvæmlega sú sama.
Vitlausasta ráðlegging sem hægt er að gefa fólki í megrun er að segja því að sleppa kolvetnum í fæðunni, jafnvel þótt margir vinsælir megrunarkúrar byggi á þessari aðferð. Um helmingur orkunnar á að koma úr kolvetnum. Líkaminn fer í annað efnaskiptaferli en honum er eðlilegt. Hann fer að brjóta niður prótein í meiri mæli sem leiðir til vöðvarýrnunar. Rannsóknir sýna að neysla hitaeninga hjá þeim sem eru á Atkins-kúrnum eða öðrum slíkum kúrum minnkar verulega eftir því sem á líður vegna þess að fólk fær mjög fljótt leið á próteinríkum mat ef það borðar ekkert annað.
Þá er sú fullyrðing að það sé óhollt að borða á kvöldin talin alröng. Líkaminn brennir allan sólarhringinn og það er engin ástæða til að svelta sig á kvöldin. Líkaminn hægir á brennslu ef hann fær ekki næringu. Það er heldur ekki sniðugt að fara að sofa svangur. Þá er líklegra að fólk sofi illa og vakni á nóttunni til að borða ótæpilega.





Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“