Lárus Freyr Einarsson, 23 ára Íslendingur, situr í gæsluvarðhaldi í Danmörku vegna gruns um morð á hinni 41 árs Chanette Sørensen. Hann átti áður í ástarsambandi við dóttur Chanette. Talið er að hann hafi skuldað Chanette peninga. Nokkrir nánir ættingjar Chanette sitja í fangelsi vegna stórfellds fíkniefnamisferlis.
Sandie Sacha Holm, dóttir Chanette, hafði verið í einhverjum samskiptum við Lárus Frey, sem hún hafði áður átt í ástarsambandi við, í byrjun árs en hélt síðan áfram sambandi sínu með núverandi kærasta sínum. Ekki er vitað til þess að Lárus Freyr hafi átt neitt sökótt við Chanette Sørensen. Ekstrablaðið hafði þó eftir dótturinni að hann hafi skuldað móður hennar peninga.
Chanette Sørensen og fjölskylda hennar hafa áður komið við sögu lögreglunnar. Árið 2006 var Chanette handtekin, ásamt sex öðrum fjölskyldumeðlimum og níu handrukkurum, vegna stórfelldrar fíkniefnasölu. Voru fjölskyldumeðlimirnir handteknir að Bøgehøjvej 27 sem er sami staður og morðið var framið á í síðustu viku.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun