Sextíu prósent svarenda í könnun MMR segja að Íslendingum beri alls ekki að ábyrgjast greiðslur til innistæðueigenda í Bretlandi og Hollandi.
MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort það teldi að Íslendingum bæri að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands (Icesave) í Bretlandi og Hollandi?
Af þeim sem tóku afstöðu voru í 59,4 prósent sem sögðu að Íslendingar ættu alls ekki að ábyrgjast slíkar greiðslur, 37,3 prósent sögðu að Íslendingar ættu að ábyrgjast greiðslurnar að hluta til og 3,3 prósent sögðu að Íslendingar ættu að ábyrgjast greiðslur til innstæðueigendanna að fullu.
Þegar svör við spurningunni voru skoðuð eftir lýðfræði svarenda kom í ljós að andstaðan við að Íslendingar gengjust í ábyrgð fyrir greiðslum til innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi var yfir 50 prósent í öllum hópum. Mest var andstaðan meðal fólks með undir 250 þúsund krónur í heimilistekjur á mánuði, en 68 prósent svarenda úr þeim hóp svöruðu spurningunni með „Nei – alls ekki“.
Í úrtaki rannsóknarinnar voru einstaklingar á aldrinum 18 til 67 ára og voru þeir valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Könnunin var síma og netkönnun og svöruðu henni 932 einstaklingar. Hún var framkvæmd frá þriðja til fimmta mars síðastliðinn.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir