Sólon R. Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbankans og KB banka, fékk 200 milljónir króna í starfslokagreiðslur frá KB-banka þegar hann lét af störfum þar í árslok 2004. Sólon hafði þá verið starfsmaður Búnaðarbankans í 21 ár og KB banka frá sameiningu þess banka og Kaupþings árið 2003.
Eftir einkavæðingu Búnaðarbankans í ársbyjun 2003, og sameiningu hans við Kaupþing nokkrum mánuðum síðar, hélt Sólon áfram að starfa sem bankastjóri í rúmt eitt og hálft ár. Þann 31. desember 2004 lét hann svo af störfum í bankanum.
Stjórn KB banka tók ákvörðun um að greiða Sóloni þessar 200 milljónir og olli ákvörðunin nokkrum deilum hjá ráðamönnum bankans þegar hún var tekin. Ýmsum þótti tilgangslaust að gera sérstakan starfslokasamning við Sólon þar sem ákveðið var að greiða honum svo háar upphæðir þrátt fyrir að í ráðningarsamningi hans væri ekkert kveðið á um slíkar greiðslur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna