Kókaíngróðinn heillar glæpahópa. Gera má nokkrar milljónir króna að tugum milljóna með einni sendingu.
Hagnaðarvonin er það sem drífur innflytjendur fíkniefna og glæpahópa áfram, enda er um háar fjárhæðir að ræða. Um þetta er fjallað í fyrsta hluta ítarlegrar umfjöllunar DV um alþjóðlega glæpastarfsemi á Íslandi í dag. Dæmi um innflutning á kókaíni sýnir að þegar innflytjandinn hefur flutti inn eitt kíló af kókaíni hingað til lands fyrir rúmlega fimm milljónir króna, verður það kíló auðveldlega að tveimur og hagnaður innflytjendans getur numið allt að 36 milljónum.
Drýgt og selt dýrum dómum
Gott verð á einu kílói af hreinu kókaíni frá Bandaríkjunum er á bilinu 27 til 33 þúsund dollarar, að sögn heimildarmanns DV. Förum milliveginn og segjum að greiddir séu 30 þúsund dollarar fyrir kílóið, en það gera 3.840.000 miðað við gengið í dag. Þá þarf að pakka efninu og það kostar á bilinu sex hundruð þúsund til einnar milljónar króna; við gerum ráð fyrir að það kosti átta hundruð þúsund krónur. Fyrir flutning á þessu kílói til Íslands er greidd um ein milljón króna. Hingað komið greiðir þá innflytjandinn 5.640.000 fyrir kókaínið.
Því hefur verið haldið fram að hægt sé að tvöfalda magn kókaíns sem hefur hreinleikann á bilinu 75 til 90 prósent, það er eitt kíló verður að tveimur.
Innflytjandinn kemur kókaíninu í verð til heildsala og kostar hvert gramm á bilinu 12 til 18 þúsund krónur. Fyrir kíló af kókaíni er innflytjandinn því að fá á bilinu 12 til 18 milljónir – en þau eru orðin tvö og því er innflytjandinn að selja þessi tvö kíló á 24 til 36 milljónir.
Hagnaður innflytjandans getur því numið allt að rúmum 30 milljónum króna. Hinir svokölluðu heildsalar selja kókaínið til smásala og hafa þá drýgt efnið í þyngd. Götusalarnir drýgja einnig efnið og er algengur styrkleiki kókaíns á götunni á bilinu 12 til 24 prósent. Götuverð á kókaíni á Íslandi í dag er á bilinu 15 til 17 þúsund krónur.
Ítarlega umfjöllun Jóhannesar Kr. Kristjánssonar um alþjóðlega glæpastarfsemi er að finna í DV í dag. Umfjöllunin mun halda áfram á næstunni. Senda má ábendingar um málefni þessu tengt á johanneskr@dv.is



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
