ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Jaycee Dugard talar opinberlega- Myndband

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:35 › 6. mars 2010
Fyrsta myndin sem birtist af Jaycee Lee Dugard.

Fyrsta myndin sem birtist af Jaycee Lee Dugard.

Jaycee Lee Dugard kom fram í þættinum Good Morning America nýverið. Er það í fyrsta sinn sem Dugard kemur opinberlega fram síðan hún losnaði úr átján ára prísund mannræningja. Hún var ellefu ára þegar Phillip Gardino rændi henni. Hann eignaðist með henni tvö börn sem eru ellefu ára og fimmtán ára í dag.

Good Morning America birti heimatilbúið myndband þar sem Dugard sést í leik og starfi. Móðir hennar Terry Probyn segist hafa opinberað myndbandið í þeim tilgangi að sýna fólki hve vel Dugard gengur að aðlagast venjulegu lífi. Hún sagði þó að Dugard yrði að fá tíma og frið til að vaxa og dafna.

Dugard er kominn með bílpróf og er í skóla. Í myndbandinu sést hún baka kökur með móður sinni og hálfsystur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.