Konan segir í viðtali við DV að lögreglan virðist ekki ráða við kóngana í undirheimunum. Sviðsett mynd
„Þeir hlógu bara að lögreglunni hér. Sögðu að þeir væru bara grín,“ segir kona sem var í sambúð með austurevrópskum manni sem talinn er vera einn helsti höfuðpaur glæpahóps sem starfar hér á landi. Nafn konunnar verður ekki birt þar sem hún telur sig vera í hættu, komi hún fram undir nafni.
Konan segir að maðurinn hafi falið fíkniefni á heimili þeirra. „Ég fann dóp undir ísskápnum, í vídeóspóluhylkjum, í skjalatösku og víðar um húsið. Þetta voru stórir pokar með hvítu efni,“ segir konan og þegar hún er spurð hvort hún hafi rætt við manninn um efnin sem hún fann svarar hún: „Fyrst var ég bara svo græn fyrir þessu öllu og var eiginlega ekkert að átta mig á þessu. Einu sinni sturtaði ég niður heilum poka af hvítu efni. Þegar ég sagði manninum frá þessu varð hann reiður og sagðist sjálfur þurfa að standa skil á sínu annars yrði hann drepinn. Hann bætti því við að ef ég gerði þetta aftur væri ekkert mál að láta mig hverfa. Ég var logandi hrædd.“
Rætt er við konuna í ítarlegri umfjöllun um skipulagða glæpastarfsemi í helgarblaði DV



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
