ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Býr við rætur Eyjafjallajökuls: Fær tuttugu mínútur

10:06 › 5. mars 2010
Bær Ólafs Eggertssonar á Þorvaldseyri. Við rætur ólgunnar.

Bær Ólafs Eggertssonar á Þorvaldseyri. Við rætur ólgunnar. Mynd úr einkasafni

„Fyrir Þorvaldseyri er þetta korter til tuttugu mínútur sem við höfum til að hafa okkur á burt ef það stefnir í eitthvað mikið í byrjun,“ segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, sem býr við rætur Eyjafjallajökuls þar sem mikil jarðskjálftavirkni hefur verið undanfarna sólarhringa og menn útiloka ekki eldgos. Ólafur segir að hann og sínir séu í sjálfu sér rólegir yfir þessu þó óvissan sé vissulega mikil.

Í samtali við DV.is kveðst Ólafur ekki hafa orðið var við skjálftahrinuna undanfarið þó hann búi á hinu órólega svæði sem allra augu beinast nú að.

Þorvaldseyri er klárlega á hættusvæði ef eldgos hefst en það fer auðvitað eftir því með hvaða hætti gosið ber að, hvar það kemur upp og svo framvegis.

„Við vitum náttúrulega ekkert um það, og það er kannski bara best. En auðvitað er opið þarna upp úr fyrir ofan bæinn og upp til jökuls. Þetta er bara gríðarlega mikil óvissa um hvað þarna er á ferðinni.“

Vinir og vandamenn hafa meiri áhyggjur en við
Aðspurður hvort hann og fjölskylda hans séu hrædd vegna hugsanlegs eldgoss og jarðhræringa segir Ólafur svo ekki vera. Það séu helst vinir og vandamenn sem hafi meiri áhyggjur af heimilismönnum en þau sjálf af sér.

„Enn sem komið er sofum við bara mjög vel en auðvitað erum við að ræða þetta. Vinir og vandamenn eru mikið að hringja en við höldum alveg ró okkar. Það eru helst þeir sem hafa áhyggjur, vekja mann á morgnanna og halda fyrir manni vöku á kvöldin,“ segir Ólafur á léttu nótunum. Og það er ekkert annað að gera að sögn Ólafs en að taka þessu með ró. Virknin á svæðinu geti alveg eins fjarað út eins og færst í aukana. Vísindamenn séu á fundi núna og muni verða í sambandi við fólk á svæðinu.

„Ég er nú í sveitastjórn hérna og Almannavarnanefndin er í góðu sambandi við sveitastjórn. Þannig að það er mjög vel fylgst með okkur og stöðug vakt yfir þessu.“

Hefur 20 mínútur til að forða sér
Aðspurður hvort einhver rýmingaráætlun sé til staðar fyrir íbúa á svæðinu ef allt fer á versta veg segir Ólafur að svo sé.

„Það er áætlun sem við flest erum meðvituð um hvernig virkar og hver íbúi hefur sína áætlun. Það fer allt eftir því hvort þetta komi upp, hvar það kemur upp og hvernig.“

Aðspurður um tímarammann sem áætlunin geri ráð fyrir á bænum hans segir Ólafur:

„Fyrir Þorvaldseyri er þetta korter til tuttugu mínútur sem við höfum til að hafa okkur á burt ef það stefnir í eitthvað mikið í byrjun. En það er stutt til fjalla og fjöllin eru há hérna í kring þannig að ég hef engar áhyggjur.“

„En við skulum ekki vanmeta þetta fjall, þetta er ekki útdauð eldstöð og hún er lifandi. Svona er Ísland og við bara búum við þetta og erum viðbúin því sem verða vill“

Ólafur segir að menn voni bara það besta og að ef eitthvað gerist þá verði það sem minnst. Hann segir helsta óvissuþáttinn vera að lítil þekking sé á hvernig þessi eldstöð hegðar sér ef hún fer að gjósa. Ekki sé í raun vitað hvernig hún hafi hegðað sér fyrir hundrað árum eða meira. Gos í Eyjafjallajökli varð síðast 1821-1823.

Óttast helst ösku og eiturgufur
„Ég óttast frekar ösku og eiturgufur frá þessu frekar en kannski flóð g hraun. Ég held að þetta sé frekar skítug eldstöð og þá hefur vindáttin mikið að segja um hvernig það fer. Ekki endilega að við séum í mestri hættu sem búum næst fjallinu. Ástandið gæti orðið verra annarsstaðar.“

„Það er mikil óvissa. Kannski springur toppurinn bara einn góðan veðurdag og gerir eina góða bombu, það er að vísu talað um að þetta sé ekki mjög kröftug stöð en maður veit aldrei.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.