Sigmundur Dvíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins rekur herskáa stefnu í Icesave og hefur nú lagt fram tillögu um að slíta samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um efnahagslega endurreisn.
Óyggjandi er að Stengrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, átti við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, þegar hann lýsti því fyrr í dag að erfitt væri að ná samningum um Icesave þegar til væru þeir í samningaliðinu sem ekki vildu semja.
Af orðum Sigmundar Davíðs og stuðningsmanna hans innan þingflokks Framsóknarflokksins má ráða að þar á bæ er minnstur viljinn til að semja; sjálfur talar hann enn fyrir dómstólaleið og að íslenska ríkið leggi engin veð á móti þeim lánum sem bresk og hollensk stjórnvöld hafa þegar innt af hendi til að gera upp við innstæðueigendur í Landsbankanum í Bretlandi og Hollandi.
Einn þingmanna Framsóknarflokksins hefur þannig látið í veðri vaka í samtali við DV að ekkert lægi á; íslensk stjórnvöld hefðu allt þetta ár og fram á það næsta til að semja.
Í samræmi við þetta hefur Sigmundur Davíð talað hart fyrir því að afgerandi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar gegn samningnum frá 30. desember bæti samningsstöðu Íslands, rétt eins og hann búist við því að samningaviðræður eigi eftir að standa enn um langa hríð.
Þá hefur Sigmundur ásamt þingmönnum Hreyfingarinnar lagt fram þingsályktunartillögu um að slíta samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Í tillögunni er ætlast til þess að fjármálaráðherra láti vinna efnahagsáætlun sem tryggi velferð og félagslegan stöðugleika án aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og hvernig forðast megi frekar erlenda skuldsetningu.
Ljóst má vera að þessi tillaga hefur hvorki mikinn hljómgrunn né þingmeirihluta. Ekki er því að sjá að herská framganga Sigmundar Davíðs verði honum til framdráttar þegar á reynir. Þvert á móti heyrast nú jafnvel raddir innan úr Sjálfstæðisflokknum um afleiki og þverrandi traust til formanns Framsóknarflokksins.
Nánar í DV í dag.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir