ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Fyrirsæta kynnir píramídaviðskipti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:34 › 5. mars 2010

Kristrún Ösp Barkardóttir, fyrirsæta kynnir fyrir Íslendingum fjárfestingartækifærið Juugo, sem er píramídafyrirtæki og gengur út á að kaupa startpakka á 52 þúsund krónur og sannfæra svo fleiri um að kaupa í Juugo. Ef viðskiptavinur safnar mörgum nýjum inn í Juugo, hækkar hann upp um borð og græðir meira eftir því.

Juugo er með aðsetur í Mið-Ameríkuríkinu Belize og gengur starfssemin út á að kaupa ákveðinn startpakka á 52 þúsund krónur og sannfæra síðan að lágmarki tvo aðra til þess að kaupa sama pakka.
Ef viðkomandi nær að sannfæra tvo um að kaupa pakkann, á fjárfestingin að hafa skilað sér. Fyrir hvern nýjan Juugo viðskiptavin eftir það á viðkomandi að græða.

Á spjallborðum netinu hefur verið varað við Juugo sem hefðbundnu píramídasvindli, svokallað „ponzi“ sem gengur út á að þeir fyrstu sem koma inn græði, en þeir seinustu tapi. Kristrún Ösp segir það ekki eiga við um Juugo. „Ég held að þetta sé öðruvísi. Þetta er ekki kynnt sem eitthvað sérstakt píramíddakerfi,“ segir hún. „Maður fær þetta alltaf til baka. Það eru engar líkur að þú finnir ekki þessa tvo sem fara undir þig.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.