ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Forsprakkar MC Iceland buðu „öryggisgæslu“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:05 › 5. mars 2010

Helstu forsprakkar mótorhjólaklúbbsins MC Iceland buðu fyrirtækjaeigendum í Hafnarfirði upp á öryggisgæslu á nóttunni síðastliðið haust, stuttu áður en þeir urðu væntanlegir félagar í Hells Angels. Hjá Hells Angels á norðurlöndum er verndarþjónusta ein af tekjuleiðum samtakanna.

Í bréfi sem eigendur fyrirtækjanna fengu í hendur kemur fram að þjónustan felist í því að fyrirtæki séu könnuð tvisvar á klukkustund með óreglulegum hætti þó, svo innbrotsþjófar eigi erfiðara með að athafna sig. Verð þjónustunnar átti að vera 3500 krónur á mánuði og var um 12 mánaða samning að ræða. Lögreglan í Hafnarfirði hafði veður af þessum fyrirætlunum og stöðvuðu starfsemina, þar sem þeir höfðu ekki leyfi til að reka öryggisþjónustu.

Þeir sem gerst þekkja til segja að nú haldi meðlimir MC Iceland sig til hlés á meðan umsókn þeirra um fulla aðild að Hells Angels sé til meðferðar. Þeir megi ekki koma sér í vandræði af ótta við viðbrögð yfirvalda.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.