ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

„Símasamband við Drottinn“ fordæmt í Frakklandi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:29 › 4. mars 2010
Á tali með Guði.

Á tali með Guði.

Símaþjónusta fyrir kaþólikka í Frakklandi hefur verið harðlega gagnrýnd af biskupum þar í landi en þar eru trúræknir rukkaðir fyrir mínútugjald til að játa syndir sínar á símsvara.

Þjónustan er kölluð Símasamband við Drottinn en þar gefst kaþólikkum færi á að játa minniháttar syndir sínar. Símsvarakveðjan er þó ströng á því að ef um dauðasynd sé að ræða sé nauðsynlegt að ræða beint við prest.

AFP-fréttastofan ræðir við stofnanda símaþjónustunnar sem vildi aðeins gefa fornafn sitt þar sem hún hefði fengið ótal hótanir frá móðguðum kaþólikkum.

Símasamband við Drottinn býður upp á þrjá valmöguleika þegar í þjónustuna er hringt: Veljið einn fyrir ráðleggingar um játningar. Tvo til að játa og þrjá til að hlusta á aðrar játningar.

„Hugmyndin er að fólk geti játað minniháttar syndir beint til Guðs,“ segir Camilla eigandi fyrirtækisins. „Þeir sem hringja inn tala ekki við manneskju en geta játað syndir sína, hlutað á bænir, tónlist eða játningar annarra í einrúmi og þægindum.“

Hún segir að símaþjónustan hafi fengið 300 símtöl fyrstu vikuna og að hluti ágóðans renni til góðgerðarmála.

Kaþólska kirkjan í Frakklandi viðurkennir þessa þjónustu ekki og fordæmir hana í raun. Hún sé skrumskæling á helgisið kaþólskrar trúar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?