ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Fyrrverandi forstjóri Sjóvár í doktorsnám

06:07 › 4. mars 2010
Þór Sigfússon. Á leið í doktorsnám í hagfræði.

Þór Sigfússon. Á leið í doktorsnám í hagfræði. Mynd: Róbert Reynisson

Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, ku vera á leiðinni í doktorsnám í hagfræði. Þór lauk BA-prófi í hagfræði við University of N-Carolina í Bandaríkjunum 1990 og meistaraprófi frá sama skóla 1991. Þór er nú atvinnulaus eftir að hafa misst forstjórastól Sjóvár og hyggst því ganga menntaveginn.

Þór er grunaður um að hafa valdið Sjóvá tjóni með vanrækslu í starfi. Viðurlög við slíku broti geta varðað allt að sex ára fangelsi en sérstakur saksóknari rannsakar nú málið. Þá gæti Þór einnig hafa skapað sér skaðabótaskyldu gagnvart Sjóvá með því að lesa ekki samninga áður en hann skrifaði undir þá. Þór hefur sagt að hann hafi aldrei haft frumkvæði að neinum ákvörðunum um fjárfestingar félagsins. Hann kveðst þó þurfa að horfast í augu við að hafa skrifað undir samninga sem reyndust félaginu dýrkeyptir án þess að hafa vitneskju um innihald þeirra.

í yfirheyrslum yfir Þór hjá sérstökum saksóknara kom fram að Þór vissi oft og tíðum ekkert undir hvaða samninga hann var að skrifa hjá Sjóvá þar sem hann hefði yfirleitt ekki lesið þá yfir. Þór gat ekki heldur útskýrt hver ástæðan var fyrir 10,5 milljarða króna láni frá Sjóvá til Vafnings í febrúar 2008. Hann vissi ekki hverjir forsavarsmenn þess félags voru né hvaða eignir það átti. Samt skrifaði hann undir samninginn. Þá segist Þór ekki hafa hagnast á viðskiptunum og ekki hafa haft frumkvæði að þeim. Hann hafi talið sig vera með teymi í kringum sig sem hann gæti treyst.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?