„Það er engin ástæða til annars en að vera á nálum og vera bara viðbúinn,“ segir Ármann. Mynd Sigurður Gunnarsson
„Ef þetta heldur svona áfram þá endar þetta með gosi,“ segir Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur um skjálftavirknina sem verið hefur í Eyjafjallajökli síðustu klukkustundirnar. Almannavarnir eru í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegs eldgoss og mun viðbragðshópur Almannavarna og eldgosadeildar Veðurstofunnar hittast á morgun til að ræða stöðuna.
Í samtali við DV.is segir Ármann að erfitt sé að segja til um hvort gos sé að hefjast. Er ástæðan meðal annars sú að þekking á Eyjafjallajökli er af skornum skammti þar sem síðasta eldgos þar var árið 1821 og þar á undan árið 1612. Ármann segir hinsvegar að enginn vafi sé á því að þarna undir sé kvika á ferðinni sem nálgast yfirborðið.
„Ef síðasta stíflan brestur þá erum við að tala um hámark hálftíma áður en hún kemur upp. Það getur hinsvegar gerst eftir hálftíma, í nótt, á morgun eða í næstu viku. En það er líka þekkt að eldfjöll hagi sér svona í ákveðinn tíma en svo hætti þau,“ segir Ármann og bætir við að full ástæða sé til að vera á varðbergi: „Það er engin ástæða til annars en að vera á nálum og vera bara viðbúinn.“
Ármann bendir einnig á það, að hvert eldfjall sé einstakt, og því sé ekkert hægt að fullyrða um það hvort eldgos sé væntanlegt. Aðspurður hvort eldgos úr jöklinum yrði stórt segir Ármann að það sé erfitt að áætla þar sem ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu mikil kvika hefur streymt inn. Eldgos þar hafi þó ekki verið mjög umfangsmikil þegar þau hafa orðið. „En það er full ástæða til að hafa áhyggjur. Á sama tíma verða menn að vera viðbúnir því að það gerist ekki neitt.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
