ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Albert vill ekki tjá sig um leyniskjölin

11:12 › 30. mars 2010
Albert Jónsson sendiherra er í leyniskýrslunni sagður hafa unnið með bandarískum stjórnarerindrekum við að gera lítið úr fangaflugi CIA á Íslandi.

Albert Jónsson sendiherra er í leyniskýrslunni sagður hafa unnið með bandarískum stjórnarerindrekum við að gera lítið úr fangaflugi CIA á Íslandi.

Albert Jónsson, aðalræðismaður Íslands í Færeyjum og fyrrverandi sendiherra í Bandaríkjunum, vill ekki tjá sig um leyniskýrsluna sem DV birti í blaði sínu í gær. Skýrslan er tekin saman af bandarískum stjórnvöldum en þar er meðal annars fjallað ítarlega um þrjá íslenska ráðamenn. Jóhönnu Sigurðardóttur, Össur Skarphéðinsson og Albert.

Í leyniskýrslunni eru persónueiginleikar Alberts raktir og kemur þar meðal annars fram að hann sé mjög hliðhollur Bandaríkjamönnum og hafi verið í nánu samneyti við starfsmenn bandaríska sendiráðsins. Þó geti hann verið harður í horn að taka sérstaklega þegar honum finnist að Bandaríkjamenn komi ekki fram við Íslendinga á jafnréttisgrundvelli. Hann hafi til dæmis mótmælt því í einkasamtölum þegar dráttur varð á skýringum frá Bandaríkjamönnum á fangaflugi CIA í íslenskri lofthelgi og hafi hann einnig talið skýringarnar ófullnægjandi. Þó hafi hann „unnið með bandarískum stjórnarerindrekum við að gera lítið úr málinu á opinberum vettvangi”, eins og segir í skýrslunni.

„Nei, ég vísa bara á ráðuneytið,“ segir Albert í samtali við DV.is aðspurður um viðbrögð sín við skýrslunni. Hann vill ekkert tjá sig um skýrsluna né innihald hennar og vísar á deildarstjóra upplýsingamála hjá utanríkisráðuneytinu.

Á DV.is í gær sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra það vera með hreinum ólíkindum að leynilegar skýrslur erlends sendiráðs um íslenska stjórnmálamenn skuli yfir höfuð vera til, og hvað þá að slík skjöl skuli leka úr bandaríska stjórnkerfinu. Hann sagði málið grafalvarlegt.

Össur sagði að það mat sem í leyniskjölunum birtist á einstökum persónum í sjálfu sér ekki vera skaðlegt þó ekki væri allt sannleikanum samkvæmt.

Hvað mesta athygli hefur vakið í skjölunum að Albert hafi aðstoðað erindreka Bandaríkjastjórnar við að gera lítið úr ætluðu fangaflugi CIA á opinberum vettvangi en á sama tíma gagnrýnt drátt á skýringum frá þarlendum stjórnvöldum í einkasamtölum. Einhverjir hafa tekið þann pólinn í hæðina að þar hafi Albert verið að leika tveimur skjöldum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?