Siggi stormur segir snjóþungan vera að víkja fyrir hlýindum og rigningu. Nema helst fyrir norðan. Mynd: Bragi Þór Jósefsson
Landsmenn hafa ýmist bölvað eða glaðst yfir snjókomunni sem verið hefur víðs vegar um landið undanfarna daga. Skíðamenn hafa sérstaklega haft ástæðu til að fagna snjóþunganum en nú stefnir í óefni fyrir þann hóp. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur segir rigningatíð framundan á sunna og vestanverðu landinu sem mun standa fram yfir helgi. Fyrir norðan gætu menn þó enn eygt vetrarfærð næstu daga.
„Við munum sjá leifarnar af þessari snjókomu í dag og kannski fyrri part morgundagsins. Síðan þróast þetta yfir í rigningu annað kvöld,“ segir Siggi stormur í samtali við DV.is.
Skammgóður vermir í Bláfjöllum – snjórinn lifir af fyrir norðan
„Við erum að fá yfir okkur hlýtt loft sem kemur væntanlega seint annað kvöld. Við erum því að sjá fyrir endann á þessari snjókomu,“ segir Siggi sem kveðst óttast að það verði skammgóður vermir hjá skíðamönnum í Bláfjöllum ef hlýindin og rigningin sem spáir verði að veruleika.
Sigurður segir þó útivistar- og skíðafólk geta glaðst yfir því að mikill snjór sé fyrir norðan. „Menn fyrir norðan ættu ekki að þurfa að hafa áhyggjur næstu daga. Það mun hlýna fyrir norðan líka, á föstudag, laugardag og sunnudag, þó það verði ekki mikil rigning þá mun þurfa meira til að bræða það magn af snjó sem er þar,“ segir veðurfræðingurinn viðkunnalegi.
„Menn hafa því alltaf þann möguleika að fá sér bíltúr norður yfir heiðar ef allt fer á versta veg hér syðra þar sem skíðamenn sjá fyrir endann á gleðinni en hinir sem bölva færðinni taka hana að nýju.“
Heilsársdekkin handónýtt drasl
Eins og fram hefur komið í fréttum hafa landsmenn átt í miklu basli í vetrarfærðinni sem kom með miklum hvelli í síðustu viku. Siggi stormur hefur nú skoðanir á því og kveðst hafa veitt því sérstaka athygli hversu slakir landsmenn virðist vera orðnir í að keyra í svona færð.
„Menn eru á þessum heilsársdekkjum sem eru handónýtt drasl eins og kemur í ljós við svona aðstæður. Annað hvort ertu bara á vetrar- eða sumardekkjum. Svo á þetta líka við um jeppana. Það er ekki nóg að ýta bara á alla fínu takkana. Það kom mér á óvart hvað ég sá marga í miklu basli í þessu snjókasti. Menn gætu verið æfðari í snjóakstri,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur að lokum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
