Þriggja ára gamall breskur drengur, Ryan Lovell-Hancox, var laminn til dauða af hinni nítján ára gömlu Kayley Boleyn og kærasta hennar Christopher Taylor á heimili þeirra í Bilston í Bretlandi. Drengurinn lést á barnasjúkrahúsi í Birmingham á aðfangadagskvöldi árið 2008. Hann hlaut 54 áverka eftir barsmíðar Boleyn og Taylor sem áttu að gæta barnsins.
Móðir drengsins Amy Hancox hafði treyst æskuvinkonu sinni Boleyn fyrir barninu gegn vikulegri greiðslu í aðdraganda jólanna því hún komst ekki yfir að gæta hans. Hancox glímdi við þunglyndi á þeim tíma eftir að hafa skilið við sambýlismann sinn ári áður. Drengurinn hafði verið í þeirra umsjón í tæplega fjórar vikur áður en hann lést.
Málið komst upp þann 22. desember árið 2008 þegar kærasti Boleyn, Christopher Taylor, hljóp yfir til nágranna í næsta húsi og bað hann um að hjálpa þeim. Sagði hann að drengurinn hefði hlotið alvarlega áverka eftir að hann féll í baðkari. Nágranninn hringdi um leið í neyðarlínuna og hljóp yfir á heimili þeirra Taylor og Bolyen. Þar sá hann Ryan meðvitundarlausan upp í rúmi og öskraði Boleyn í örvæntingu sinni: „Hvað höfum við gert, hvað höfum við gert“.
Drengnum var flýtt á sjúkrahús en fljótlega kom í ljós að læknar gátu ekki hjálpað honum vegna alvarlegra höfuðáverka sem hann hlaut vegna barsmíðanna. Þá kom í ljós að Ryan var með brunasár á nefninu. Telja læknar að hann hafi fengið það eftir að Boleyn nuddaði nefi hans í þvag á gólfinu sem hann hafði misst vegna hræðslu.
Réttarhöld standa yfir í Bretlandi vegna málsins. Í frétt breska blaðsins Daily Mail kemur fram að kviðdómendur hafi verið í áfalli í Wolverhampton-réttarsalnum þegar þeir sáu myndir af áverkum Ryans.
Í frétt Daily Mail kemur fram að móðir drengsins hafi reynt að heimsækja hann daglega á því tímabili sem hann var í umsjá vinkonu sinnar og sambýlismanns hennar. Kom þó fyrir að hún náði ekki að heimsækja hann nema á tveggja til þriggja daga fresti.
Hún hitti drenginn sinn í síðasta sinn þann 20. desember árið 2008. Var hann fremur órólegur þegar hún fór frá honum. Daginn eftir þegar hún ætlaði að heimsækja hann var miði á útidyrahurðinni með skilaboðum frá Boleyn. Hún skrifaði þar að þau hefðu farið með drenginn í göngutúr. Í ljós kom við rannsókn málsins að þau voru í raun heimavið en vildu ekki leyfa móðurinni að sjá áverkanna sem Ryan hafði hlotið.
Talið er að dómur falli í málinu innan fjögurra vikna.





Um hvað ræðir FBI á leynilegum fundum? – Hlustaðu hér
Kynlíf í starfslýsingunni
Almennir borgarar dæma Breivik
Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi
Geyma lík í ræstikompum