ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Geimferðir kosti 60 þúsund krónur innan tíu ára

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:13 › 3. mars 2010
Talið er að ferð út í geiminn eigi eftir að kosta sextíu þúsund krónur innan tíu ára.

Talið er að ferð út í geiminn eigi eftir að kosta sextíu þúsund krónur innan tíu ára.

Bandaríski verkfræðingurinn Burt Rutan telur að geimferðir geti kostað litlar sextíu þúsund krónur innan tíu ára. Að minnsta kosti vill hann gera það mögulegt að innan tíu ára geti fólk skellt sér í ferðir út í geiminn án þess að þurfa að greiða fyrir það fúlgur fjár.

Rutan er einna frægastur fyrir að hanna fyrstu flugvélina sem flaug umhverfis hnöttinn án þess að stöðva.

Nýtur hann stuðnings fjárfestisins og ævintýramannsins Richard Branson, eiganda Virgin-fyrirtækisins. Rutan hannar nú geimfar sem er ætlað að flytja almenna borgara út í geiminn fyrir tiltölulega lítinn pening.

Hann býst við að þeir sem hafi áhuga á að kaupa ferðir út í geiminn séu um hundrað þúsund talsins og vonast hann til að einhverjir af þeim hafi áhuga á að fjárfesta í verkefninu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.