ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Utanríkisráðherra í kattavinafélaginu

11:39 › 29. mars 2010
Össur í kattavinafélaginu.

Össur í kattavinafélaginu.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum gætir verulegrar ólgu innan raða VG vegna ummæla Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. „Kattaummælin“ svokölluðu hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum en Össur Skarphéðinsson segir menn gera of mikið úr ummælunum.

„Ég tel að mínir góðu vinir í VG geri allt of mikið úr þessum gáskafullu ummælum forsætisráðherra,“ segir Össur í samtali við DV.is.

„Við höfum og munum eiga gott samstarf við þingmenn VG. Menn verða að þola það að það gefur stundum á bátinn og skipstjórinn gefur stundum fyrirmæli hvassri röddu,“ segir Össur sem síðan slær á léttari strengi.

„Hitt liggur alveg ljóst fyrir að í þessu samhengi lít ég hins vegar á mig sem góðan liðsmann í kattavinafélaginu.“

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum lét Jóhanna þau orð falla á fundinum á Hótel Loftleiðum á laugardaginn að engin ríkisstjórn gæti haldið það út til lengdar að búa við óvissan og ótraustan meirihluta í stórum og erfiðum málum.

„Hoppandi meirihlutar á Alþingi duga skammt við aðstæður eins og okkar þjóð gengur í gegnum og of mikil orka og tími fer að smala þeim saman og ná málum í gegn. Ein flokksystir okkar orðaði þetta ágætlega þegar hún sagði að þetta væri eins og að smala köttum,“ sagði Jóhanna í ræðu sinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?