ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Össur um leyniskjöl: „Gersamlega óviðunandi“

10:26 › 29. mars 2010
Úttekt á Össuri í bandarískum leyniskjölum. Óviðunandi að slík gögn séu til og hvað þá að þau leki segir Össur.

Úttekt á Össuri í bandarískum leyniskjölum. Óviðunandi að slík gögn séu til og hvað þá að þau leki segir Össur.

„Það er með ólíkindum að leynilegar skýrslur erlends sendiráðs um íslenska stjórnmálamenn skuli fyrir það fyrsta vera til, og ég á tæpast orð yfir því að ítrekað skuli leyniskjöl með þessum hætti leka úr bandaríska stjórnkerfinu,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um bandarísku leyniskjölin um íslenska ráðamenn sem fjallað er um á forsíðu DV í dag.

Eins og fram kemur í DV í dag tóku bandarísk saman ítarlegar skýrslur um íslenska ráðamenn. Þrjár þeirra birtast í DV í dag. Um Jóhönnu Sigurðardóttur, Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra í Bandaríkjunum og Össur.

Össur segir í samtali við DV.is í morgun að málið sé grafalvarlegt.

„Við teljum að það sé grafalvarlegt þegar einhliða skýrslugerð af þessum toga, og fyrri toga sem áður hefur lekið, skuli með þessum hætti berast í hendur fjölmiðla.Það getur gefið mjög bjagaða mynd af viðfangsefninu þegar duttlungar einstaka stjórnarerindreka ráða því sem úr tölvuborði hrýtur,“ segir ráðherrann.

Hann segir að það mat sem þarna birtist á einstökum persónum sé í sjálfu sér ekki skaðlegt og hann gerir engar stórvægilegar athugasemdir við það sem þarna kemur fram.

„Það er þó ekki allt sannleikanum samkvæmt. Eigi að síður er þetta mjög alvarlegt mál og það er alveg ljóst að það er gersamlega óviðunandi að leynilegar upplýsingar sem menn vissu ekki að væru til komist með þessum hætti í fjölmiðla. Maður spyr hvað næst? Á maður von á að sjá framhaldssögu í íslenskum fjölmiðlum þar sem birtar eru skýrslur bandarískra stjórnarerindreka um íslenska stjórnmálamenn? Að sjálfsögðu verður tekið á þessu í samskiptum ríkjanna.“

Össur segir að íslensk stjórnvöld muni krefjast skýringa á því hvernig svona nokkuð geti gerst og sömuleiðis með hvaða hætti stjórnvöld ytra hafi brugðist við fyrri lekum.

„Þetta hlýtur að skaða möguleika viðkomandi utanríkisþjónusta til að eiga eðlileg samskipti ef ekki verður undinn bráður bugur á þessu.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?