ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Ögmundur: Hvort talað er um sauðfé eða ketti gildir nú litlu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:50 › 28. mars 2010
Ögmundur Jónasson.

Ögmundur Jónasson.

  • Jóhanna Sigurðardóttir.

    Jóhanna Sigurðardóttir.

„Jóhanna Sigurðardóttir verður að eiga það við sig hvernig hún orðar hlutina og hvaða augum hún lítur sitt samstarfsfólk,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, um ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum í gær.

Þar sagði Jóhanna of mikinn kraft fara í að fá meirihluta fyrir málefnum ríkisstjórnarinnar inn á Alþingi og að smala saman meirhluta væri jafn erfitt og að smala saman köttum. Þessi ummæli hafa farið fyrir brjóstið á þingmönnum Vinstri grænna sem ætla að funda um málið á morgun.

„Ég ætla ekki að fella neina þunga dóma um hennar ummæli en mér hefur hugnast það illa að horfa til einhverskonar hjarðmennsku þegar stjórnmálin eru annarsvegar. Það hefur komið okkur illa í seinni tíð að haga stjórnmálum á þann veg að fólk sé sett í dilka eins og kindur í rétt og hvort talað er um sauðfé eða ketti gildur nú litlu. Ég tel hugsun af þessu tagi ekki við hæfi,“ segir Ögmundur í samtali við DV.is.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.