Hópur áhugamanna um frjálsa og óháða fjölmiðlun hefur keypt rekstur DV og DV.is af Hreini Loftssyni og fyrirtæki hans Birtingi. Stofnað hefur verið nýtt hlutafélag, DV ehf. og mun það hafa nægt fé til að styðja við reksturinn og koma blaðinu í gegnum tímabundinn samdrátt á auglýsingamarkaði.
Mikil áhersla verður lögð á að takmarka áhrif eigendavalds á DV, en í samþykktum hins nýja félags er kveðið á um að enginn einn hluthafi geti farið með meira en 26% atkvæða, óháð hlutafjáreign. Einnig er í samþykktunum gerður skýr greinarmunur á stjórn félagsins og ritstjórn. Aukinn meirihluta mun þurfa til að breyta samþykktum.
Eigendaskiptin á DV fara fram nú um mánaðamótin. Gerður hefur verið tímabundinn samningur við Birting um leigu húsnæðis og vissa stoðþjónustu. Rekstur blaðsins verður að öðru leyti óbreyttur og tíðni útgáfudaga verður hin sama. Ritstjórar verða áfram Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson og gert er ráð fyrir að þeir blaðamenn sem starfað hafa á ritstjórn DV haldi áfram störfum fyrir blaðið. Lögð verður áhersla á að styrkja sölu og dreifingu blaðsins enn frekar og sjá nýir eigendur mörg tækifæri til að bæta tekjuöflun. Mikil eftispurn virðist vera eftir fréttum óháðra fjölmiðla.
Stærstu hluthafarnir í DV ehf. eru Lilja Skaftadóttir og Reynir Traustason, en nokkrir leggja fram lægri upphæðir, auk þess sem starfsmönnum verður gert kleift að eignast hlut í blaðinu. Hluthafahópurinn verður kynntur nánar í DV strax eftir páska. Auk þess er gert ráð fyrir að nákvæm skrá yfir hluthafa blaðsins verði aðgengileg á vefnum dv.is. Kaupverð blaðsins er trúnaðarmál. Kaupunum er ætlað að tryggja útgáfu á frjálsu og óháðu dagblaði og fréttavef í dreifðri eignaraðild. DV mun ekki taka afstöðu með ákveðnum stjórnmálaflokkum eða viðskiptablokkum. Blaðið mun byggja afkomu sína fyrst og fremst á því að fólkið í landinu kjósi að kaupa blaðið - annað hvort í áskrift eða í lausasölu.
Reynir Traustason:
„Ég er þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem við höfum fundið. Það er greinilegt að það eru margir sem vilja að haldið verði áfram á sömu braut. DV hefur mikilvægu hlutverki að gegna á íslenskum fjölmiðlamarkaði – ekki síst nú þegar kunnar valdablokkir halda utan um hin tvö dagblöðin á markaðnum. DV er elsta dagblað landsins. Það er runnið af rót Vísis sem stofnaður var árið 1910 sem óháð frétta- og auglýsingablað. Fjárhagur blaðsins hefur oft verið þröngur, en það hefur þó ávallt haldið áfram að koma út. Þetta er blað fólksins og ég trúi að það muni lifa svo lengi sem lesendur halda áfram að lesa það. Trúnaður okkar er við lesendur. Það eru nýir tímar í augsýn á Íslandi og það er ekkert lögmál að fjölmiðlar þurfi að vera í höndum annað hvort ríkisins eða auðmanna. Við munum vonandi sýna og sanna að dreift eignarhald fjölmiðla borgi sig.“
Lilja Skaftadóttir:
„Það er mér mikil ánægja að geta tekið þátt í framhaldslífi DV með Reyni Traustasyni. Hann hefur með sér góðan hóp blaðamanna sem sýnt hafa frábæra blaðamennsku síðastliðna 18 mánuði. Margt hefur gerst á Íslandi frá hinum örlagaríka októberdegi 2008, og allar líkur eru á því að næstu mánuðir eigi eftir að verða engu minni örlagaríkir. Hin langþráða skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er á næstu grösum og ekki veitir af að hafa óháðan fjölmiðil til þess að fjalla um hana. DV á að vera blað allra landsmanna og ég treysti blaðamönnum DV til að leyna engu og upplýsa um það sem skiptir máli.“
Um Lilju Skaftadóttur
Lilja hefur starfað við listaverkasölu í Frakklandi. Hún á lögheimili á Íslandi en dvelur hluta ársins í Frakklandi. Lilja hefur ekki verið áberandi í íslensku viðskiptalífi. Einu hagsmunatengsl Lilju hér á landi eru að hún var framleiðandi heimildarmyndarinnar „Maybe I should have“ auk þess sem hún er meðal hluthafa í vefritinu Smugunni. Lilja hefur lagt baráttunni fyrir auknu lýðræði á Íslandi lið og skipaði hún 2. sæti á lista Borgarahreyfingarinnar í NV-kjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar.
Lilja á tvær dætur sem búa í Frakklandi og eru 13 ára og 23 ára.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
