Flott par. Friðrik Ómar og Ármann Skæringsson ætla að flytja til Svíþjóðar. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson
Stórsöngvarinn Friðrik Ómar og unnusti hans Ármann Skæringsson ætla að leggja land undir fót og flytja til Stokkhólms í Svíþjóð. Friðrik hefur verið einn ástsælasti söngvari landsins undanfarin ár og tekið þátt í hverri stórsýningunni á fætur annarri.
„Ég er bara að leita að íbúð eins og staðan er núna,“ segir Friðrik sem bætist þar með í hóp fjölmarga ungra Íslendinga sem flytja af landi brott.
Friðrik hefur verið ein helsta söngstjarna Íslands frá því hann sló í gegn sem innhringjandi í útvarpsþátt Sniglabandsins á Rás 2. Síðan hefur leiðin legið upp á við og Friðrik hefur undanfarið verið með frábæra tónleika þar sem hann hefur sungið lög Elvis Presley. Uppselt hefur verið á flesta tónleika en síðustu forvöð eru að sjá Friðrik Ómar í búningi Elvis um helgina.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Jim Parsons kemur út úr skápnum
Emily snýr aftur
Of auðvelt líf
Transkona í 12. sæti
Hver hefur sinn djöful að draga
