„Það eru þrjú eldgos framundan,“ segir Lára Ólafsdóttir sjáandi. „Það er Hekla, ég sé Kötlu illa, en mér sýnist þetta liggja nær Vatnajökli. Þarna mun gjósa. Mér sýnist verða þarna þrjú gos samtímis.“
Lára var mikið í fréttum síðasta sumar þegar hún spáði stórum jarðskjálfta á Krýsuvíkursvæðinu klukkan 23:15 hinn 27. júlí. Sá skjálfti reið aldrei yfir. „En mér finnst mjög merkilegt að eldgosið á Fimmvörðuhálsi hafi byrjað klukkan 23:30, en ég sagði 23:15,“ segir Lára sem spáir nú miklum jarðhræringum til viðbótar eldgosinu sem hófst á laugardaginn en segir að enginn þurfi að örvænta.
„Við Íslendingar erum svo heppnir, það er með ólíkindum að allir skuli alltaf lifa af, eins og gerðist í gosinu í Vestmannaeyjum á sínum tíma. Það sem er að gerast á Íslandi núna mun vekja mikla athygli úti í heimi. Ísland á eftir að verða vinsælasta land í heimi,“ segir Lára.
Lára Ólafsdóttir segist ekki vita nákvæmlega hvenær byrji að gjósa. „Ég sé þríhyrning yfir landinu, þrjár eldsúlur. Inni í þríhyrningnum er talan 27, sem merkir dagsetningu. Það má svo leggja 2 og 7 saman til að fá töluna níu. Það þýðir að þetta mun annað hvort verða 27. eða níunda.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
