Óttinn leynir sér ekki í andliti Megyn Kelly þegar hún ræðir hugsanlegt Kötlugos við prófessor á Fox í gær.
„Ísland er ekki staður sem við fjöllum venjulega um. En það er góð ástæða fyrir því í dag. Atburðir sem eiga sér stað þar gætu nefnilega að sögn vísindamanna stofnað allri jörðinni í hættu.“ Svona hljóða upphafsorð umfjöllunar Fox-fréttastofunnar bandarísku um eldgosið á Íslandi.
Verið er að fjalla um möguleikann á því að í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli gæti Katla tekið upp á því að gjósa líka eins og dæmi eru um í sögunni. Þegar það hafi gerst hafi það breytt veðurfari á jörðinni að því er segir í frétt Fox-fréttastofunnar í gær.
Í fréttinni ræðir fréttakona Fox, Megyn Kelly, við jarðskjálftafræðinginn John Rundle frá Berkley-háskólanum í Bandaríkjunum sem gerir nú voða lítið til að draga úr hamfaravinkli fréttakonunnar sem virðist álíka skelkuð og áhorfendur hennar hafa vafalítið verið.
Sjá má viðtalið hér að neðan:



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
