„Þetta virðist vera kraftlítið gos“

„Óróinn sýnir að þetta virðist vera mjög stöðugt gos. Hann hefur þó minnkað mjög mikið eftir að gosið reis sem hæst, upp úr miðnætti," segir Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðeðlisfræðingur við Veðurstofu Íslands, spurð hvernig eldgosið á Fimmvörðuhálsi hafi þróast síðustu stundirnar.

Hún segir að dregið hafi úr skjálftavirkni eftir að gosið hófst. Það sé eðlilegt og hafi til að mynda gerst síðast í Grímsvötnum. Það þurfi ekki endilega að þýða að gosið hætti í bráð.

Spurð hvort gosið geti brotist fram á fleiri stöðum í grenndinni segir Sigurlaug að frá því í sumar hafi verið að myndast innskot kviku undir suður eða suðvesturhlið Eyjafjallajökuls. Eftir áramót hafi sú þróun haldið áfram en undanfarnar vikur hafi kvikan verið farin að teygja sig í átt að Fimmvörðuhálsi. Erfitt sé að segja til um hvort gjósa muni á fleiri stöðum en svo geti farið að sprungan stækki. Það sé þó óvíst.

„Þetta virðist vera kraftlítið gos enn sem komið er. Það getur hins vegar gerst að kvikan spýtist inn og lengi sprunguna,“ segir Sigurlaug.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.