ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Smygl í Perú: Grunaði að ekki væri allt með felldu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:30 › 21. mars 2010
Jóna Denny Sveinsdóttir var handtekin í Perú grunuð um að hafa reynt að smygla 2 kílóum af kókaíni.

Jóna Denny Sveinsdóttir var handtekin í Perú grunuð um að hafa reynt að smygla 2 kílóum af kókaíni.

„Okkur grunaði að ekki væri allt með felldu hjá henni,“ segir Þröstur Sveinsson bróðir Jónu Denny Sveinsdóttur sem situr nú í gæsluvarðhaldi í Perú grunuð um fíkniefnasmygl.

Þröstur frétti af málinu á þriðjudagskvöldið fyrir. Hann segist ekki hafa vitað til þess að Jóna hefði verið í óreglu hér á Íslandi en hann segir að hún hafi verið í tygjum við tvo menn af nígerískum uppruna; annar búi á Íslandi en hinn í Noregi. Hún hafi með skömmum fyrirvara farið utan.

Þröstur vonast til að Jónu gefist tækifæri til að afplána dóm sinn á Íslandi, ekki síst vegna barna hennar, en þrjú þeirra búa hér. Þau eru á aldrinum 17 til 20 ára. Tvö yngstu börnin, sem eru 10 ára, búa í Bandaríkjunum.

„Ég óttast um líf systur minnar ef hún þarf að aðplána dóminn í Perú, hugsanlega við hræðilegar aðstæður,“ segir Þröstur en hann hefur séð til þess að börn Jónu hafi húsaskjól og segir að þau séu vitanlega miður sín.

Viðtal við Þröst og ítarleg umfjöllun um málið er í helgarblaði DV



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?